Sid Meier
Sid Meier (fæddur 1954) er þekktur tölvuleikjahönnuður. Hann hefur hannað nokkra af vinsælustu tölvuleikjum allra tíma. Meier hefur margsinnis verið heiðraður fyrir framlag sitt til tölvuleikjaiðnaðarins og er enn í dag talinn meðal stærstu nafnanna í þeim geira.
Ferill
[breyta | breyta frumkóða]Sid Meier stofnaði MicroProse ásamt Bill Stealey árið 1982. Hjá MicroProse hannaði Meier leikinn sem hann er þekktastur fyrir, Civilization. Meier yfirgaf að lokum MicroProse og stofnaði árið 1996 fyrirtækið Firaxis Games ásamt Jeff Briggs. Í dag gefur Firaxis út herkænskuleiki, en margir þeirra eru endurgerðir eldri leikja Meiers, svo sem Civilization III og Pirates!.
Árið 1999 varð Meier annar maðurinn til að komast í Academy of Interactive Arts and Sciences' Hall of Fame. Sá fyrsti var Shigeru Miyamoto frá Nintendo.
Meier er hamingjusamur fjölskyldufaðir í Hunt Valley, Maryland.
Tilvitnun
[breyta | breyta frumkóða]„Leikur er röð af áhugaverðum ákvörðunum.“
Leikir
[breyta | breyta frumkóða]Meier hefur hannað leiki í um þrjá áratugi. Nokkrir af þekktari leikjum hans eru hér í tímaröð:
- Solo Flight (1984)
- Kennedy Approach (1985)
- F-15 Strike Eagle (1985)
- Silent Service (1985)
- Sid Meier's Pirates! (1987)
- F-19 Stealth Fighter (1988)
- Covert Action (1990)
- Railroad Tycoon (1990)
- Civilization (1991)
- Pirates! Gold (1993)
- Colonization (1994)
- Civilization II (1996)
- Sid Meier's Gettysburg! (1997)
- Sid Meier's Alpha Centauri (1999)
- Civilization III (2001)
- SimGolf (2002)
- Sid Meier's Pirates! (2004)
- Civilization IV, (2005)
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Vefsíða Firaxis
- The Sid Meier Legacy Geymt 16 maí 2008 í Wayback Machine